• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Kvennagolf á Ekkjufellsvelli !

Þriðjudagur, 03. ágúst 2010 09:25

Kvennagolf fimmtudagskvöldið 5.ágúst klukkan 20:00 á Ekkjufellsvelli.

Leiðsögn og léttar veitingar ( kjúklingasalat, hvítvín/gos) 3.000 krónur.
Leiðbeinandi Hrafn Guðlaugsson.
Stelpur nú er um að gera að hafa gaman, æfa okkur, spila smá og njóta seinni parts sumarsins með kylfurnar á lofti.
Skráning á netfangið  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 848-1610.


   

Tískusýning á Humarhátíð !

Fimmtudagur, 01. júlí 2010 00:04

Eftirfarandi bréf barst til okkar í stjórn TAK frá Ágústu Arnardóttur á Djúpavogi.  Ágústa hlaut hvatningarverðlaun TAK nú nýverið og því viljum við hvetja allar þær konur sem verða á Humarhátíð á Hornafirði að nýta sér þetta góða boð.agusta2

Mig langar svo að bjóða allar TAK konur sérstaklega velkomnar á tískusýningu með vörum frá Arfleifð á Humarhátíð á Höfn.   Á þessum link er allt um sýninguna og nokkrar myndir:     Vona að þetta komist til skila til allra Tak kvenna og vona að ég sjái ykkur sem flestar.   bestu kveðjur Ágústa

   

Tengiliðir óskast !

Þriðjudagur, 22. júní 2010 08:23

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar TAK var ákveðið að koma upp tengiliðum á hverjum þéttbýlisstað á austurlandi.  Ef þið hafið áhuga á að verða tengiliðir í ykkar byggðarlagi, endilega sendið póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Einnig var samþykkt á aðalfundi félagsins að fela stjórn að koma á vinnuhópi til að endurskoða lög félagsins.  Þær sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku starfi, sendið póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Að öðru leyti mun starf félagsins vera á lágu nótunum yfir sumarmánuðina, venju samkvæmt.  Við munum svo koma tvíefldar til starfa þegar líður að hausti.

 

   

Okkar kona !

Mánudagur, 07. júní 2010 00:12

Umfjöllun RÚV um Hagleikssmiðju Ágústu á Djúpavogi !

http://www.ruv.is/frett/opnar-hagleikssmidju-a-djupavogi

   

Síða 1 af 7

Dagatal

Júlí 2010 ágúst 2010 September 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31