
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Laugardagur, 16. janúar 2010 11:52
TAK-kona janúar-mánaðar 2010
Hvað heitir þú? Ég heiti Guðrún Margrét Óladóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu? Ég er fædd í Reykjavík, bjó í Skíðaskálanum í Hveradölum til 8 ára aldurs, Akranesi til 13 ára aldurs, í Reykjavík til 22 ára aldurs er ég kom til Eskifjarðar á síldarvertíð haustið 1983 og bý þar enn.
Hvenær ertu fædd? Ég er fædd 25. ágúst 1961
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir? Ég er gift manni sem heitir Guðni Kristinsson og á tvö börn. 23. ára stúlku sem heitir Jóhanna og sem var að gera mig að ömmu þann 4. janúar s.l. og 19 ára strák sem heitir Freyr.
Við hvað starfar þú? Ég starfa sem stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum á Eskifirði.
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi? Mínir uppáhaldstaðir á Austurlandi eru. Vöðlavík, Borgarfjörður eystri og Eskifjörður
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands? Það sem mér finnst skipta mestu máli eru bættar samgöngur og þá fyrst og fremst með byggingu jarðgangna ( Samgöng) um Mið- Austurland.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá? Ég hugsa að ég gæti hugsað mér að búa einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu t.d. Hafnarfirði eða í ca klukkutíma akstursfjarlægð þaðan. Einnig kæmu Kanaríeyjar til greina.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Þessa dagana finnst mér skemmtilegast að spjalla við hana dótturdóttur mína en annars finnst mér mjög gaman að spila, lesa góðar bækur, hlusta á tónlist, horfa á handbolta eða fótbolta og fara á kaffihús með skemmtilegu fólki.
Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi? Gott þriðjudagskvöld byrjar náttúrulega með góðum kjúklinga eða fiskrétti. Síðan toppar það alveg kvöldið að fara í heimsókn til vina eða fá heimsókn og taka í spil.
Kanntu að dansa? Einhvern tímann hefði ég sagt já við þessari spurningu en í dag held ég að ég svari þessu neitandi.
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna? Ég skráði mig fyrst og fremst vegna þess að mig langaði að kynnast fleiri konum alls staðar af Austurlandi því ég held að saman getum við haft svo mikinn samtakamátt. Svo finnst mér konur bara svo skemmtilegur félagsskapur.