
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Miðvikudagur, 16. desember 2009 09:08
TAK-kona Desembermánaðar
Hvað heitir þú ? Ásta Árnadóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu ? Ég er frá Reykjavík, en bý núna á Reyðarfirði og búin að búa þar í í 6 1/2 ár
Hvenær ertu fædd ? 5. nóvember 1960
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir ? Ég er gift Jóni Grétari Margeirssyni, sem er rekstrarstjóri Byko Reyðarfirði og eigum við 3 börn Magnús Árni sem er 28 ára og er nemandi í Háskóla Reykjavíkur Eiríkur Ingi sem er 17 ára og er nemandi í Verkmenntaskóla Austurlands Ásta Þórey 12 ára og er nemandi í Grunnskóla Reyðarfjarðar
Við hvað starfar þú ? Ég starfa við bókhald á Bæjarskrifstofum Fjarðarbyggð
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór ? Nei ég er alltaf að skipta um skoðun.
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi ? Fjölskylda mín skiptir mig miklu máli og þeirra velferð
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi ? Atlavík, Vöðlavík og Reyðarfjörður
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands ? Að sem flestir hafi vinnu og góð þjónusta
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá ? Kópavogi
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera ? Ferðast, vera með fjölskyldunni og fara út með hundinn minn
Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi ? Jóga.
Kanntu að dansa ? Nei
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna ? Tækifæri til að kynnast fleiri konum á Austurlandi, svo er margt athyglisvert sem tengslanetið hefur upp á bjóða.