• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Ragnhildur Jónsdóttir

rjnovTAK- kona Nóvembermánaðar

 

Hvað heitir þú? Ragnhildur Jónsdóttir

Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Fædd á Borgarfirði eystri þar sem föðurættin mín er upprunnin en fluttist á Höfn þriggja mánaða þar sem ég ólst upp með aðstoð Borgfirðinga á sumrin - ... og bý á Höfn

Hvenær ertu fædd? 12. Júní 1956

Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?
Gift Grétari Vilbergssyni trillukarli og við eigum  tvö einbirni, stelpur,   sú eldri fædd 1982, sú yngri fædd 1993

Við hvað starfar þú?
Náms- og starfsráðgjafi og verkefnisstjóri hjá ÞNA á Hornafirði.

Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
 ÉG er stór alla vega 1.62 og er mjög ánægð í starfinu mínu. Mikið at og fjölbreytni.

Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi?
Þetta klassíska sem við erum að koma aftur auga á eftir græðgisvæðinguna; góð heilsa, að rækta gott samband við  fjölskylduna og vinina.

Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi? Það eru hinir ótrúlega fjölbreyttu fjalladalir í Hornafirði, Borgarfjörður eystri og Víkurnar og hin magnaða  náttúra á Djúpavogi.

Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands?
Það er að styrkja einstaklingana til þess að skapa sér sinn eigin starfsvettvang. Ná til fólks á vinnumarkaði hið formlega skólakerfi hentaði ekki á sínum tíma og bjóða þessum hópi menntun sem getur skilað honum starfsréttindum. Það er alveg ótrúlega mikill vannýttur mannauður sem er falinn á í þessum hópi á Austurlandi.  

Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá? Á Akureyri

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Ferðast, fara á fjöll, lesa góðar bækur, læra tungumál og vera með góðum vinum í alls konar ....

Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi? Er´ða nú , ... þriðjudagskvöld !!! Borða góðan fiskrétt sem hann Grétar minn hefur galdrað fram, kannski fara í sund á eftir ef veðrið er gott (ekki rok og rigning). Spjalla við mitt fólk en áður en ég fer í rúmið verð ég að sjá Spooks.

Kanntu að dansa?
Ég lærði það einu sinni og þykist kunna það, hoppa eitthvað og finnst ég voða klár. Langar til að skapa mér tíma til að fara á dansnámskeið.

Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna? Af því að það skiptir mig miklu máli að vera upplifa kraftinn sem býr í konum, skapa ný tengsl og viðhalda gömlum. Svo lét Stefanía mig ekki í friði ... ;-)

 

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30