
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Föstudagur, 23. október 2009 19:52
TAK-kona októbermánaðar !
Hvað heitir þú? Rósmarý Dröfn Sólmundardóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu? Fædd og uppalin í Sandgerði og bý á Stöðvarfirði
Hvenær ertu fædd? 17. 02. 1973
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir? Gift og á 3 börn
Við hvað starfar þú? Er annar eigandi Brekkunnar (verslunar og veitingastofu) á Stöðvarfirði
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór? Eins og staðan er núna ætla ég að verða verslunareigandi;)
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi? Fjölskyldan mín
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi? Stöðvarfjörður, Breiðdalur og Atlavík
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands? Atvinnumál
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá? Sennilega á suðurnesjum
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Vera með fjölskyldu og vinum
Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi? Að vera með fjölskyldunni
Kanntu að dansa? Ekkert ofur vel;)
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna? Ég var kynnt fyrir því þegar ég var beðin að halda kynningu á fyrirtækinu mínu og fannst þetta gott tækifæri til að kynnast öðrum konum á austurlandi og öðrum fyrirtækjum.