• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Sigrún Hólm Þórleifsdóttir

sigrunHvað heitir þú?
Sigrún Hólm Þórleifsdóttir

 
Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Fædd, uppalin og búsett á Héraði!

 
Hvenær ertu fædd?
1983 


Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?
Með mann og barn

 
Við hvað starfar þú?
Skrifstofustjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa

 
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Ég ætla að verða Kaupfélagsstýra ;)

 
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi?
Fjölskyldan og heilsan! 


Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi?
Ég elska labbitúr í Hallormsstaðaskógi, jeppaferð í Brúardali og sólsetur við Hurðarbak!

 
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands ?
Koma upp öflugu menntasetri til að halda ungviðinu heima. 


Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá?
Í Færeyjum!

 
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Skemmtilegast er að rökræða við 2ja ára son minn!

 
Hver er uppskriftin af fullkomnu þriðjudagskvöldi?
Öll stórfjölskyldan samankomin að hakka í sig mat og taka eitt spil á eftir!

 
Kanntu að dansa?
Já, algjör dansdíva :)

 
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna?
Góður vettvangur til að kynnast, læra og skemmta sér!

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30