
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Miðvikudagur, 15. apríl 2009 00:00
Hvað heitir þú?
Jónína Zophoníasdóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Ég er fædd og uppalin á Mýrum í Skriðdal á Fljótsdalshéraði og bý þar.
Hvenær ertu fædd?
28. febrúar 1949
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?
Ég er gift, á þrjú uppkomin börn og tvær ömmustelpur.
Við hvað starfar þú?
Ég starfa sem bóndi með 32 kýr og 40 nautgripi. Einnig erum við með skógrækt á jörðinni.
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Já, loksins. Ég er þessa dagana að stofna fyrirtæki sem mun nefnast Jurtagarðurinn. Þar mun ég leggja mesta áherslu á framleiðslu smyrsla úr jurtum sem vaxa í íslenskri náttúru. Þau smyrsl verða hrein náttúruafurð án allra aukaefna.
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi?
Fjölskyldan mín og góð heilsa.
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi?
Stórurð undir Dyrfjöllum, Möðrudalur á Fjöllum og jörðin mín.
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands ?
Koma á framleiðslufyrirtækjum þar sem framleitt er úr frumatvinnuvegum þjóðarinnar, þ.e. landbúnaði og sjávarútvegi. Ég sé einnig gríðarleg sóknarfæri í líftækniiðnaði þessarra frumgreina. Ég hef trú á Vatnajökulsþjóðgarði og atvinnusköpun í kringum hann sem og ferðamennsku almennt á Héraði og á Fjörðum.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá?
Ég sé mig hvergi annars staðar en á Austurlandi.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Ferðast innanlands sem utan. Ég er í gönguhóp og við göngum mikið um hálendið og í eyðibyggðum sem mér finnst gefa lífinu gildi. Einnig finnst mér gaman að njóta menningar og lista, fara á tónleika, á söfn og í leikhús.
Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi?
Fara á söngæfingu hjá Torvald Gjerde, eins og ég hef gert í mörg ár. Vil hvergi annars staðar vera.
Kanntu að dansa?
Já.
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna?
Til að sýna mig og sjá aðra. Hef þó ekki verið nógu dugleg að mæta.