
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Þriðjudagur, 15. september 2009 00:00
Hvað heitir þú?
Jóhanna Björk Guðmundsdóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Ég er frá Höskuldsstöðum í Breiðdal, en bý núna á Egilsstöðum
Hvenær ertu fædd?
Þann eðaldag 12. febrúar 1956
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?
Gift Hirti Þór Ágústssyni við eigum synina Atla Vilhelm og Kjartan Ottó. Erum orðin 2 í kotinu.
Við hvað starfar þú?
Ég vinn á endurskoðunarsviði KPMG á Egilsstöðum.
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Lífsglöð
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi? 
Fjölskyldan og vinirnir.
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi?
Breiðdalurinn, Atlavík, Svartiskógur.
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands?
Byggja upp atvinnulífið og þá sérstaklega á svæðunum fjær álverinu. Allt annað kemur ef er næg vinna.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá?
Sé ekki fyrir mér að ég búi annarsstaðar en á Austurlandi í nánustu framtíð.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Ferðast bæði innanlands og utan og vera í góðra vina hópi.
Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi?
Byrja á því að fara á Rótaryfund og hitta alla góðu félagana þar, koma síðan heim og segja húsbóndanum frá því hvað hafi verið gaman á Rótaryfundinum, setjast síðan niður og sauma svolítið út og fara síðan snemma að sofa, vinnudagur daginn eftir.
Kanntu að dansa?
Já, flesta gömlu dansana.
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna?
Leist vel á hugmyndafræðina á bak við félgagsskapinn og þetta er kjörið tækifæri til að kynnast fólki og öðrum lífsskoðunum, einnig tel ég mig hafa einhverju að miðla.