
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Föstudagur, 15. maí 2009 00:00
Hvað heitir þú?
Ágústa Margrét Arnardóttir í höfuðið á ömmu minni á Hornafirði.
Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Ég fæddist á Hornafirði og bjó þar til 18 ára aldurs. Þá fór ég að flækjast um heiminn, en hef þó alltaf verið mjög mikið á Hornafirði og Djúpavogi því maðurinn minn er þaðan og nú höfum við búið á Djúpavogi í rúmlega 2 ár, búin að kaupa okkur hús og koma okkur rosalega vel fyrir.
Hvenær ertu fædd?
6. nóvember 1978, sem sagt ný orðin þrítug.
Maðurinn minn heitir Guðlaugur Birgisson fæddur 26.06"80 á Djúpavogi. Við eigum saman tvö börn, Vigdísi fædd 20.09"06 og Örn Þór fæddur 12.02"08. Svo er ég alveg ólýsanlega rík af foreldrum, tengdaforeldrum, systkynum, tengdasystkynum, mágkonum, mágum, svilum og allskonar ættingjum. Einnig á ég bestu vini í heimi.
Við hvað starfar þú?
Ég er hönnuður og handverksskona. Ég lærði almenna hönnun í Iðnskólanum í Hafnarfirði og skó-og fylgihluta hönnun á Ítalíu. Ég starfa undir nafninu GUSTA DESIGN og sérhæfi mig í hönnun og framleiðslu á hágæða töskum og öðrum fylgihlutum úr hágæða íslensku hráefni. Meira um það á www.gustadesign.is
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Já, ég vona að ég eignast miklu fleiri börn og njóti alltaf lífsins eins vel og ég get. Svo langar mig að byggja GUSTA DESIGN upp þannig að ég geti alltaf haft atvinnu af því sem ég fæst við núna. Partur af því er til dæmis að opna “hagleikssmiðju” á Djúpavogi næsta sumar. Hagleikssmiðja væri opin vinnustofa þar sem fólk getur séð hvernig ég vinn vörurnar mínar og fengið upplýsingar um það hráefni sem ég nota, sem eru hreindýra-sel- og lamba leður, þorsk-lax-hlýra og karfa roð. Einnig verður nokkursskonar safn eða fræðslusetur með upplýsingum í máli og myndum um það hvernig leður og roð hefur verið sútað á Íslandi frá upphafi byggðar hér og í hvað skinnin hafa mest verið notuð.
Markmið með Hagleikssmiðjum er að: varðveita hefðbundið handverk, byggja upp sjálfbær handverksfyrirtæki, bjóða almenningi upp á hágæða menningar- og ferðaþjónustu afurð og þróa menningar- og lærdóms ferðamennsku. Djúpivogur er mikill ferðamannastaður og mikið spurt eftir handverki, sérstaklega það sem er unnið úr svæðistengdu hráefni. Þetta er rosalega spennandi verkefni og ég er á fullu að undirbúa þetta allt saman núna, auk þess að vera alltaf að hanna nýja hluti og framleiða vörur.
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi?
Börnin mín og fjölskyldan. Gera góða hluti fyrir fjölskylduna mína og samfélagið allt. Ég vona að með GUSTA DESIGN og hagleikssmiðjunni taki ég þátt í uppbyggingu í ferða og menningamálum hér á Djúpavogi og verði jafnvel fyrirmynd fyrir aðra hönnuði og handverksfólk um land allt.
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi?
Þar sem fjölskyldan mín er, þar sem ættingjar mínir eru og þar sem vinir mínir eru.
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands ?
Að fólk og fyrirtæki með góðar viðskiptahugmyndir fái tækifæri, styrk og fjármagn í að framkvæma hugmyndir sínar. Hér eru gríðarlega mörg tækifæri til atvinnusköpunar sem tengjast ferðamálum, menningu og listum, framleiðslu á einhverju til útflutings og mörgu öðru. Það þarf að aðstoða einstaklinga og lítil fyrirtæki til nýsköpunar.
Og svo verðum við náttúrulega öll að vera dugleg að eignast mikið af börnum og sjá til þess að þau hafi tækifæri til menntunnar, félagsstarfa og atvinnu í framtíðinni. Því það sem við gerum í dag skilar sér í framtíðinni, það er skylda okkar að gera eitthvað sem skilar sér í þjóðfélagið. Atvinnuleysi á ekki að þekkjast hér eða það að fólk þurfi að flytja burt úr fjórðungnum vegna vöntunar á náms- og atvinnu tækifærum.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá?
Ef það yrði að vera á Íslandi en ekki Austurlandi gæti ég alveg hugsað mér að prófa að búa í Vestmannaeyjum, Akureyri eða kannski fyrir Vestan einhversstaðar. En líklega færi ég bara til Barcelona, þar bjó ég þegar ég var tvítug og mig langar alltaf aftur þangað og elska allt við borgina.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Ég lifi mjög skemmtilegu lífi og flest sem ég geri er skemmtilegt, ég elska að vera með börnunum mínum, manninum, fjölskyldunni og vinum. Ég elska vinnuna mina og finnst oftast allt gaman sem tengist henni. Mér finnst gaman að borða og sofa. Stundum verð ég að slaka algjörlega á og vera í friði og þá finnst mér það skemmtilegt en stundum verð ég að gera eitthvað mikið, hitta fólk og skemmta mér og þá er sko rosalega skemmtilegt. Ætli mér finnist ekki bara skemmtilegast að ....lifa lífinu.
Hver er uppskriftin af fullkomnu þriðjudagskvöldi?
Að heimilið mitt sé allt hreint og fínt og góður matur tilbúin án þess að ég þurfi að spá nokkuð í því. Eiga svo góðann tíma með börnunum mínum og manninum t.d fara í sund eða bara leika okkur eitthvað hérna heima, svæfa svo börnin og hafa það kósí upp í sófa, horfa á sjónvarpið, prjóna, lesa eða bara spjalla við manninn minn eða vini um daginn og veginn.
Kanntu að dansa?
Já ég held það, allavega finnst mér rosalega gaman að dansa, það er sko eitt af því skemmtilegasta sem ég geri, og ég geri mikið af því. Bæði ein heima ef það kemur gott lag í útvarpinu, með börnunum mínum og svo finnst mér alveg ótrúlega gaman að fara út og dansa, á böllum eða diskó.
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna?
Mér finnst þetta bara svo sniðugt, góð leið til að kynnast öðrum konum og efla tengslin. Í starfi mínu þarf ég oft að leita til annarra til að fá ráðleggingar eða aðstoð. Fyrir síðustu jól komu fjölmargir aðilar nálægt GUSTA DESIGN á einhvern hátt, td. grafískur hönnuður, ljósmyndari, saumakonur, fyrirsætur og margt fleira, stundum er erfitt að finna réttu aðilana til samstarfs og ég er viss um að tengslanet eins og TAK geti aðstoðað mig þar. Mér finnst gaman að tala við aðrar konur í atvinnurekstri eða þær sem eru að skapa eitthvað, þó það sé mjög ólíkt því sem ég er að gera. Maður lærir svo mikið af öðrum og góð tengsl eru bara nauðsynleg. Ég sé á félagaskrá TAK að það eru rosalega margar ólíkar konur skráðar og eflaust getur maður lært eitthvað af þeim öllum og svo er bara skemmtilegar félagsskapur nauðsynlegur.