
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. október 2009 16:54 Skrifað af: Administrator Sunnudagur, 15. febrúar 2009 00:00
Hvað heitir þú?
Rannveig Þórhallsdóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Ég er frá Egilsstöðum og bý í Garði á Seyðisfirði.
Hvenær ertu fædd?
Árið 1974.
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?
Ég er nýgift og þriggja barna móðir.
Við hvað starfar þú?
Ég starfa um þessar mundir sjálfstætt við ritstörf auk þess sem ég hef tekið að mér afleysingarkennslu í 60 % starfi við Grunnskóla Seyðisfjarðar
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Mig langaði alltaf sem unglingur að verða myndlistarmaður, en fannst það ekki nógu praktískt og tók því stefnuna á bókmenntafræði við HÍ. Ætli mig langi ekki mest af öllu að verða rithöfundur (eins og mýtan segir að öllum bókmenntafræðingum langi að verða!)
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi?
Börnin og eiginmaður, vinna sem maður hlakkar til að mæta til á hverjum degi og gott samband við vini og þá nánustu.
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi?
Skálanes, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri.
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands ?
Sem Seyðfirðingur segi ég að sjálfsögðu að jarðgöng til Egilsstaða séu algjört forgangsatriði, en sem Austfirðingur tel ég mikilvægt að allir leggist á eitt að styrkja frumkvæði og dug í atvinnulífinu.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá?
Grikklandi.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Gönguferðir í náttúrunni, lestur góðra bóka og spila Scrabble.
Hver er uppskriftin af fullkomnu þriðjudagskvöldi?
Scrabble með manninum eða nokkrir þættir með vitleysingunum í 30Rock!
Kanntu að dansa?
Ekki eins vel og maðurinn minn - þrátt fyrir eitt tangónámskeið!
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna?
Til að tengjast skemmtilegu og uppbyggilegu samstarfsneti enn skemmtilegri kvenna!