
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Fimmtudagur, 15. janúar 2009 00:00
Hvað heitir þú?
Ég heiti Þuríður Ragnheiður Sigurjónsdóttir í höfuðið á ömmu sem fannst þetta nú ekki gæfulegt nafn á fyrsta barnabarnið
Hvaðan ertu og hvar býrðu?
Ég er uppalinn á bænum Efsta-Grund undir Vestur-Eyjafjöllum( í Rangárþini eystra) en bý núna á á Reyðarfirði
Hvenær ertu fædd?
Ég er fædd 16 mars 1983 á fæðingarheimili Reykjavíkur
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?
Ég er trúlofuð Ásmundi Pétri Svavarssyni
Við hvað starfar þú?
Ég starfa sem rafvirki hjá Alcoa Fjarðaáli, fékk sveinsbréfið í hendurnar síðasta laugardag :-)
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Nei ég er ekki búin að því, langar að gera svo margt!
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi?
Kallinn minn og fjölskyldan og góð heilsa okkar allra
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi?
Mjóifjörður, Öxi og Borgarfjörður Eystri
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands ?
Allt sem viðkemur börnum og unglingum hvort sem það er í leik eða starfi, íþróttir hafa alltaf verið það sem ég vil sjá meira af og eins og staðan er í dag þá þurfum við að efla íþróttastarf okkar betur, reyna að hafa hana fjölbreyttari og opnari fyrir alla krakka, lífið er nefnilega ekki bara fótbolti eins skrítið og það er.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá?
Þá byggi ég í Vík í Mýrdal, alveg engin spurning! fallegasti staður á landinu að mínu mati
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
humm... hvar á ég að byrja, hreyfa mig, ferðast innanlands, elda, ég er spilafíkill á 52 spil er meira að segja að reyna að læra bridds bara til að geta spilað oftar! Finnst rosalega gaman að gera eitthvað með fjölskyldunni og að hafa nóg að gera ;-)
Hver er uppskriftin af fullkomnu þriðjudagskvöldi?
Vera í vaktafríi, elda eitthvað gott fyrir kallinn fara svo með honum út að ganga koma heim í góða sturtu og svo upp í rúm að kúra :P
Kanntu að dansa?
Ég lærði dans í barnaskóla... og þau spor hafa fylgt mér eitthvað síðan, þetta var alltaf vika á hverju ári í svona 5 eða 6 ár þannig það sitja alltaf í manni einhver spor :-)
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna?
Datt inn á þetta fyrir tilviljun um daginn og sá um hvað þetta var og fannst alveg brillijant að skrá mig, greinilega hressar stelpur og alltaf gaman að kynnast nýju fólki.