
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Fimmtudagur, 01. júlí 2010 00:04
Eftirfarandi bréf barst til okkar í stjórn TAK frá Ágústu Arnardóttur á Djúpavogi. Ágústa hlaut hvatningarverðlaun TAK nú nýverið og því viljum við hvetja allar þær konur sem verða á Humarhátíð á Hornafirði að nýta sér þetta góða boð.
Mig langar svo að bjóða allar TAK konur sérstaklega velkomnar á tískusýningu með vörum frá Arfleifð á Humarhátíð á Höfn. Á þessum link er allt um sýninguna og nokkrar myndir: Vona að þetta komist til skila til allra Tak kvenna og vona að ég sjái ykkur sem flestar. bestu kveðjur Ágústa