• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Tengiliðir óskast !

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar TAK var ákveðið að koma upp tengiliðum á hverjum þéttbýlisstað á austurlandi.  Ef þið hafið áhuga á að verða tengiliðir í ykkar byggðarlagi, endilega sendið póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Einnig var samþykkt á aðalfundi félagsins að fela stjórn að koma á vinnuhópi til að endurskoða lög félagsins.  Þær sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku starfi, sendið póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Að öðru leyti mun starf félagsins vera á lágu nótunum yfir sumarmánuðina, venju samkvæmt.  Við munum svo koma tvíefldar til starfa þegar líður að hausti.

 

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30