• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Aðalfundur 2010

 

Aðalfundur Tengslanets Austfirskra Kvenna

haldinn 20. maí 2010 kl. 20:00 á Hótel Héraði, Egilsstöðum 

Auður Anna Ingólfsdóttir formaður TAK setti fundinn og fól Þórunni Hálfdánardóttur fundarstjórn og Ingibjörgu Jónsdóttur fundarritun og var það samþykkt af fundargestum.

 Dagskrá aðalfundar:                   

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
  3. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár kynntur og lagður fram til samþykktar
  4. Breytingar á samþykktum
  5. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna
  6. Ákvörðun félagsgjalds og gjalddaga þess
  7. Önnur mál og afhending Hvatningarverðlauna TAK.

 

Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.: Auður Ingólfsdóttir benti fundargestum á að kynna sér  skýrsluna sem lá fyrir og óskaði eftir athugasemdum. Hæst bar stofnun sambærilegra tengslaneta víða um land og heimsóknir til þeirra; Urður á NA landi, Tengslanet Vestfirskra Kvenna á Vestfjörðum og Virkja- Norðvestur konur. TAK er fyrirmynd þessarra tengslaneta og verður gaman að fylgjast með vexti þeirra á næstu árum. Auður las einnig upp bréf til TAK frá Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta þar sem hún lýsti yfir ánægju sinni með félagsskap af þessu tagi hvatti konur áfram á þessarri braut. Skýrsla stjórnar var samþykkt einróma.

 

Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár kynntur.: Þórunn Hálfdánardóttir fór yfir efnahagsreikning. Spurt var um nokkra liði. Á bak við liðinn fundir og ráðstefnur var salaleiga, rútukostnaður á jólahlaðborð, ferðakostnaður vegna ferða til annarra tengslaneta og veitingar. Kostnaður við námskeið fólst í greiðslum til fyrirlesara. Varðandi frekari fjármögnun er stefnt á að sækja um í Vaxtarsamning í haust. Umsókn var einnig send inn í Hlaðvarpann fyrr á þessu ári en vegna tæknilegra mistaka hjá þeim fór hún aldrei í gegn. Aftur á að reyna í febrúar og verður þá sótt um styrk fyrir heimasíðugerð og samtengingu tenglsanetanna sem komin eru á landsvísu. Ársreikningur var lagður fram og samþykktur.

 

Breytingar á samþykktum: Björk Sigurgeirsdóttir kynnti tvær tillögur að breytingum á 8. grein samþykkta og 9. grein samþykkta. Breytingartillögur voru samþykktar einróma (sjá samþykktir). Einnig kom Björk með tillögu að nýrri breytingu sem beindist að 7. grein samþykkta. Hún var þess efnis að þar sem TAK er orðið 5 ára félag og nokkuð stálpað eins og tekið var til orða, þá sé í raun ekki þörf lengur á því að Þróunarfélag Austurlands tilnefni eina stjórnarkonu. Umræður sköpuðust um þessa tillögu og ákveðið var að fela stjórn að taka ákvörðum um hvort ætti að skipa nefnd um þetta mál eða taka ákvörðun.

 

Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna: Auður Ingólfsdóttir, Eygló Hrönn Ægisdóttir og Björk Sigurgeirsdóttir fara úr stjórn. Ingunn Þráinsdóttir og Þórunn Hálfdánardóttir sitja áfram og auk þeirra koma í stjórn Ingibjörg Jónsdóttir Egilsstöðum, Rannveig Þórhallsdóttir Seyðisfirði og Unnur Óskarsdóttir Seyðisfirði. Nýja varastjórn skipa Sigrún Þorsteinsdóttir Fellabæ og Þorbjörg Gunnarsdóttir Egilsstöðum. Skoðunarmenn TAK, Hulda Daníelsdóttir og Jóhanna B. Guðmundsdóttir voru endurkjörnar.

 

Ákvörðun félagsgjalds og gjalddaga þess:  Tillaga kom frá fráfarandi stjórn að árgjald myndi hækka úr 2000 krónum í 2250 krónur og hafa gjalddaga óbreyttan. Sú tillaga var samþykkt einróma.

Önnur mál og afhending Hvatningarverðlauna TAK: Boðið var upp á léttar veitingar og konum sem eru í framboði til sveitarstjórna var sérstaklega boðið á aðalfund og gefinn kostur á að kynna sig og sín stefnumál.  Þrjár konur tóku til máls og urðu hinar skemmtilegustu umræður í framhaldi af því. Auður þakkaði konum fyrir að gefa kost á sér til stjórnmála og vitnaði í bréf Vigdísar Finnbogadóttur sem átti þarna vel við.

Hvatningarverðlaun TAK voru einnig afhent í fjórða sinn. Þau hlaut að þessu sinni Ágústa Arnardóttir á Djúpavogi, en hún hefur á nokkrum árum komið upp hönnunarstofunni Arfleifð sem framleiðir fatnað og fylgihluti úr íslensku hráefni. Ágústa hafði með sér nokkur sýnishorn af framleiðslu sinni og fengu fundarkonur tækifæri til að skoða varninginn.

 

Formlegum fundi var slitið kl 22:00, fráfarandi stjórn var þakkað kærlega fyrir starfsárið og ný stjórn var boðin velkomin til starfa.

 

 

 

 

 

 

 

 

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30