• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

8. júní 2010

Fundur haldinn í stjórn Tengslanets Austfirskra kvenna 8. júní 2010 kl. 18:00

Mættar: Rannveig Þórhallsdóttir, Unnur Óskarsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Þórunn Hálfdanardóttir. Ingunn Þráinsdóttir boðaði forföll.

Dagskrá:

  1. Stjórn skiptir með sér verkum

    Formaður:Rannveig Þórhallsdóttir

    Gjaldkeri:Ingibjörg Jónsdóttir

    Ritari:Þórunn Hálfdanardóttir

  2. Umsókn um styrk til Vaxtasamnings – Rannveig ætlar að skoða þetta. Umsóknarfrestur rennur út í ágúst.
    • Upp úr skúffunum
    • Fyrirtækjaheimsóknir
  3. Umsókn um styrk í Hlaðvarpann – Þórunn ætlar að skoða hvenær umsóknarfrestur rennur út
    • Gerð heimasíðna tengslanetsins
    • Upp úr skúffunum
  4. Golfnámskeið – athuga hvort Hrafn er til í að taka þetta að sér. Stefna á síðari hluta júní. Þórunn ætlar að skoða þetta.
  5. Stefna að því að koma upp tengiliðum á hverjum stað – stjórnarkonur skiptu með sér stöðum.
    • Vopnafjörður - Þórunn
    • Borgarfjörður eystri - Ingibjörg
    • Reyðarfjörður -Unnur
    • Eskifjörður - Unnur
    • Neskaupstaður - Unnur
    • Fáskrúðsfjörður - Rannveig
    • Stöðvarfjörður - Rannveig
    • Breiðdalsvík - Ingibjörg
    • Djúpivogur - Rannveig
    • Höfn – Þórunn

Fleira ekki tekið fyrir – fundi slitið kl. 19:30.

Fundargerð ritaði Þórunn Hálfdanardóttir

 

 

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30