• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

17. mars 2010

Fundur stjórnar Tengslanets austfirskra kvenna 17. Mars 2010 kl 12:00 á Hótel Héraði .

Mættar voru: Auður Ingólfsdóttir, Ingunn Þráinsdóttir, Eygló Hrönn Ægisdóttir,  Þórunn Hálfdanardóttir , Katla Steinsson og Stefanía Kristinsdóttir.

 1.      Sýnileiki, auglýsingamál: 

Ákveðið að setja inn „takk“ auglýsingu til Fáskrúðsfirðinga og Seyðfirðinga f.gestrisni þegar Tak heimsótti þessa staða í Austurgluggann og að auglýsa betur þegar viðburðir eru.

 2.      Stjórnmálaskóli:  Námskeið á Egilsstöðum 19-21.mars. Auður fékk til kynningar frá Þórdísi K.Pétursdóttur vegna námskeiðsins en þar er fyrirvarinn allt of stuttur. Ef dagsetning verður endurskoðuð getur Tengslanetið unnið með þeim.

 3.      Starfsmaður. Átaksverkefni í gegnum Vinnumálastofnun. Hugmyndin kynnt og ákveðið að vinna með hana áfram.

 4.      Önnur mál:  þegar fundarmenn voru búnir að nefna tölu og Tóta búin að reikna útfrá því hver verður kona apríl-mánaðar. Það verður Alma J.Árnadóttir. 

Ekki meira rætt, fundi slitið kl 13:00. Fundargerð ritaði Eygló Hrönn Ægisdóttir.

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30