• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Hvatningarverðlaun TAK

agusta1Á nýliðnum aðalfundi vor Hvatningarverðlaun TAK afhent í fjórða sinn. Þau hlaut að þessu sinni Ágústa Arnardóttir á Djúpavogi, en hún hefur á nokkrum árum komið upp hönnunarstofunni Arfleifð sem framleiðir fatnað og fylgihluti úr íslensku hráefni.

Ágústa hafði með sér nokkur sýnishorn af framleiðslu sinni og fengu fundarkonur tækifæri til að skoða varninginn og er ég illa svikin ef einhverjar gera sér ekki ferð á Djúpavog í sumar til að skoða meira. 

Á meðfylgjandi myndum má sjá Ágústu ásamt Auði, fráfarandi formanni og Þórunni, gjaldkera stjórnar. 

agusta2Hér má sjá sýnishorn af vörum Ágústu, en hún hyggst opna vinnustofu sína á Djúpavogi formlega þann 17. júní nk.

 

agusta3

 

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30