
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Laugardagur, 22. maí 2010 10:15
Aðalfundur félagsins var haldinn á Hótel Héraði fimmtudaginn 20. maí. Mæting var sæmileg, en þó hefðum við gjarnan viljað sjá fleiri konur.
Á myndinni er fráfarandi stjórn, en hún hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum á liðnu starfsári, s.s. prjónakaffi í Sláturhúsinu, tveim ráðstefnum um málefni kvenna, kynningarfundum, námskeiðum og fleiru. Einnig var á starfsárinu lögð vinna í að aðstoða konur í öðrum landsfjórðungum að koma í gang tengslanetum af svipuðu tagi og okkar.
Ný stjórn var kjörin og skipa hana:
Varamenn eru:
Gerðar voru 2 smávægilegar breytingar á samþykktum félagsins. Ákvæði um að ársreikningur skuli vera tilbúinn í lok mars var fellt út og frestur til að skila tillögum til breytinga á samþykktum til stjórnar var styttur úr 30 dögum í 14 og þannig færður til samræmis við frest þann sem tilskilinn er fyrir boðun aðalfundar.
Í lok fundar voru konum sem eru í framboði til sveitarstjórna gefinn kostur á að kynna sig og sín stefnumál. Þrjár konur tóku til máls og urðu hinar skemmtilegustu umræður í framhaldi af því.
Hvatningarverðlaun TAK voru svo afhent og hlaut þau að þessu sinni Ágústa Arnardóttir á Djúpavogi, en hún starfrækir þar hönnunarverkstæðið Arfleifð og leggur mikið upp úr að nota íslenskt hráefni í sínar vörur.
Loks var fráfarandi stjórnarmönnum þökkuð vel unnin störf, en þær sem nú fara úr stjórninni eru: