
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Miðvikudagur, 12. maí 2010 14:05
TENGSLANET V – VÖLD TIL KVENNA
SINNASKIPTI, SAMSKIPTI & HUGREKKI
27. – 28. maí á Bifröst
Bandaríski metsölurithöfundurinn Barbara Ehrenreich er aðalfyrirlesari á Tengslaneti V- Völd til kvenna ráðstefnunni sem haldin verður á Bifröst 27. – 28. maí næstkomandi. Ehrenreich þykir einn róttækasti samfélagsgagnrýnandi sem nú er á ritvellinum. Hún er jafnframt dálkahöfundur í New York Times og tíður gestur í spjallþáttum í bandarísku sjónvarpi. Lundúnablaðið Times hefur kallað hana Jonathan Swift samtímans vegna skarprar sýnar hennar á öfgar og óréttlæti. Bók hennar Nickel and Dimed var nýlega valin ein af tíu bestu bókum síðasta áratugar á sviði rannsóknarblaðamennsku af blaðamannstofnun New York háskóla.
Yfirskrift tengslanetsins 2010 er: SINNASKIPTI, SAMSKIPTI & HUGREKKI. Annar aðalfyrirlesara er Dr. Sigríður Benediktsdóttir kennari við Yaleháskóla, einn höfunda rannsóknarskýrslunnar. Hún mun leggja út af þema ráðstefnunnar um hugrekki í erindi sínu um aðdraganda og eftirmála hrunsins. Um 30 aðrar konur eru með framsögur á ýmsum sviðum. Stjórnendur panelumræðna verða Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, Ingveldur Einarsdóttir formaður Dómarafélags Íslands, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Ragnheiður Elín Árnadóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks.
Tengslanetsráðstefnan er fjölsóttasta og vinsælasta ráðstefna sem haldin er í íslensku athafnalífi. Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor er stofnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar, sem var fyrst haldin 2004. Árið 2008 sló ráðstefnan aðsóknarmet en þá sóttu hana 500 konur. Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðu Bifrastar www.bifrost.is Þar er einnig hægt að skrá sig og fá upplýsingar um gistingu.
Ráðstefnan hefst með göngu á Grábrók á fimmtudagskvöldinu 27. maí með þátttöku frambjóðenda allra flokka í sveitarstjórnarkosningunum. Að göngu lokinni verður kvöldverður við langeld við Hreðavatn.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskólans á Bifröst www.bifrost.is undir Tengslanet V.
Dagskrá er hér: http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/tengslanet-v/dagskra/
Gisting: http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/tengslanet-v/gisting-vegna-tengslanets-v/
Upplýsingar um gistingu í nágrenni Bifrastar (þ.á m. eru BSBR sumarbústaðir leigðir út á mjög hagstæðu verði).
Skráning er á heimasíðu Bifrastar: http://www.bifrost.is/pages/radstefnur-umsoknir/tengslanet-v-vold-til-kvenna-skraning/