• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Alma Jóhanna Árnadóttir

almaTAK-kona apríl mánaðar 2010

Hvað heitir þú? Alma Jóhanna Árnadóttir.

Hvaðan ertu og hvar býrðu?
 Hef komið víða við en er Húsvíkingur búsett á Egilsstöðum.

Hvenær ertu fædd? 29. janúar 1969.

Hverjir eru þínir fjölskylduhagir? Gift Eiríki Birni Björgvinssyni starfandi bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði og á með honum þrjá drengi;  Hákon Bjarnar 4 mánaða, Birni Eiðar 22 mánaða og Árna Björn 13 ára.

Við hvað starfar þú? Móðir í fullu starfi með grafíska hönnun sem aukabúgrein.

Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
 Nja... ímynda mér stundum að ég sé komin á áfangastað en kem svo sjálfri mér á óvart. ––Allt hefur sinn vitjunartíma.

Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi? Guðsgjafirnar, hamingjan og heilbrigðið.

Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi? Skógarnir á Héraði, Eiðar og Mjóifjörður.

Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands? Veggöng milli fjarða og Héraðs.

Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá? Nær stórfjölskyldunni.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Njóta augnabliksins.

Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi? Staldra við, finna til þakklætis og gleðjast eins og enginn sé morgundagurinn.

Kanntu að dansa? Ó, já.

Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna? Af forvitni.

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30