• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Frábær TAK heimsókn á Fáskrúðsfjörð!

soguhornMánud. 8. mars stormuðu TAK konur á Fáskrúðsfjörð á stefnumót við Fáskrúðsfjarðarkonur.

Líneik Anna Sævarsdóttir og Berglind Agnarsdóttir tóku á móti vöskum hópi 15 kvenna við grafreit franskra sjómanna rétt utan við kaupstaðinn Búðir. Þaðan var farið í Loðnuvinnsluna LVF og fengu konur frábæra innsýn í þetta tæknivædda  fyrirtæki. Starfsmenn þar tóku einstaklega vel á móti þessum óvæntu gestum.

Að þessu loknu var staldrað við hjá ráðhúsi bæjarins, þar fengu konur kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu á gömlu húsum bæjarins og mögulegum flutningi gamla franska spítalans frá Hafnarnesi handan fjarðar inn í kjarna bæjarins..

Frá ráðhúsinu var svo farið í skólamiðstöðina á Fáskrúðsfirði sem er stórglæsileg bygging og voru konur sérstaklega hrifnar af samlegðaráhrifum þess að hafa leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og bókasafn bæjarins allt á einum stað. Trés magnifique! Berglind Agnarsdóttir sýndi konum þessa glæsilegu byggingu og endaði heimsóknin þar á gullpúðum og sögustund í söguhorni Berglindar í innsta kjarna leikskólans Kærabæjar. Var það mjög huggulegt, trés charmant.

Ferðinni lauk svo í yndislegri fiskisúpu og nýbökuðu brauði á Café Sumarlínu.

TAK þakkar Fáskrúðsfjarðarkonum innilega fyrir höfðinglegar móttökur.

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30