
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 14:02
TAK-kona febrúar-mánaðar 2010
Hvað heitir þú? Sigríður Sigþórsdóttir
Hvaðan ertu og hvar býrðu? Fædd á Akureyri en var flutt ung á Vopnafjörð. Hef verið á Fljótsdalshéraði með nokkrum hléum í næstum 18 ár en bý nú á Egilsstöðum
Hvenær ertu fædd? 30. nóvember 1976
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir? Einstæð móðir með eitt barn
Við hvað starfar þú? Starfa við löggæslu í umdæmi Sýslumannsins á Seyðisfirði, með starfsstöð á Egilsstöðum.
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór? Nei ekki alveg, ætlaði mér ekki að verða lögreglumaður þannig að enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Hvað skiptir mestu máli í þínu lífi? Að sjá ekki eftir neinu og sonur minn.
Nefndu 3 uppáhaldsstaði á Austurlandi? Úff þetta er efitt. Mörg sjávarþorp koma upp í hugann helst vegna þess hversu margt gott fólk býr þar. En svo koma líka aðrir staðir upp í hugann þar sem fólk býr ekki lengur eða hefur ekki búið. Atlavík, Snæfell og Sænautasel eru allir í ágætu uppáhaldi hjá mér.
Hvað finnst þér vera forgangsatriði í uppbyggingu Austurlands? Fyrst og fremst atvinna en síðan menntun og þjónusta. Allt þetta verður að haldast í hendur með dassi af samvinnu allra sem að málinu koma. Íbúarnir verða líka að láta af hrepparígnum til að almenn uppbygging geti orðið á Austurlandi.
Ef þú byggir ekki á Austurlandi, hvar byggir þú þá? Ég var svo heppin að fá vinnu hér fyrir Austan en þar sem ég er einstæð móðir þá kemur sá staður upp í hugann þar sem barnið mitt getur alist upp og orðið að góðum manni. Sá staður getur verið víða en ansi margir staðir koma ekki til greina.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Ferðast, elda og borða góðan mat í góðra vina hóp.
Hver er uppskriftin að fullkomnu þriðjudagskvöldi? Segjum sem sé að ég sé ekki að vinna, sem er allt eins líklegt, þá er það að borða góðan kvöldmat með syni mínum. Lesa fyrir hann skemmtilega sögu fyrir svefninn. En þegar hann er sofnaður að koma því öllu í verk sem þarf á góðu heimili. Gaman ef nokkrir vinir kíkja í heimsókn og spjalla yfir góðum kaffibolla. Gott ef hægt væri að skipuleggja eitthvað skemmtilegt.
Kanntu að dansa? Auðvitað en af gefnu tilefni þá dansa ég ekki í lögreglubúning.
Af hverju skráðir þú þig í Tengslanet austfirskra kvenna? Mér fannst það bara kalla á mig enda kvennfélag að mínu skapi þar sem konan er jafnt að gefa af sér og þiggja.