• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Aðalfundur TAK

Miðvikudagur, 05. maí 2010 08:58

TAK_adalfundur_2010

Enn einu sinni er komið að aðalfundi TAK.  Hann verður haldinn á Hótel Héraði fimmtudaginn 20. maí kl. 20:00.

Auk hefðbundinna aðalfundastarfa verður boðið upp á léttar veitingar, skemmtiatriði og  hvatningarverðlaun TAKsins veitt. 

Tilnefningar til hvatningarverðlaunanna óskast  sendar á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Skv. lögum félagsins verða kjörnir 2 nýir stjórnarmenn og eru framboð og ábendingar vel þegnar.  Endilega sendið á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þið hafið áhuga á að komast í stjórn samtakanna eða hafið ábendingar um áhugasamar konur.

 

 

   

Boðskort á sýningu

Föstudagur, 23. apríl 2010 11:49

gusta_kort
   

Sýning á Djúpavogi

Föstudagur, 23. apríl 2010 08:25

kolar6Frá GustaDesign Djúpavogi

Heimasíðan opnar laugardaginn 24. apríl (hammondhelgi) og sama dag verður frumsýning á vörunum á frumlegri og flottri sýningu hér á Djúpavogi. Ég verð með 10-12 lifandi fyrirsætur upptilltar inn á milli gamalla hluta á byggðasafninu á efri hæðinni í Löngubúð. Þar verður lifandi tónlist og huggulegheit.

Á neðri hæðinni (hjá barnum:)  verður allt kynningarefni og heimasíðan kynnt á skjávarpa, ég ætla að bjóða upp á hvítvín og líklega verða líka léttar veitingar úr svæðistengdu hráefni.

Þetta er frá kl 17-18 á laugardeginum.
Frá kl 14-16 verður handverksmarkaður með mikið af nýjum og flottum vörum frá Djúpavogsbúum og vinum Djúpavogs. 
Það verða líka ljósmyndasýningar á hótelinu og við voginn. Svo eru að sjálfsögðu tónleikar með Hjálmum um kvöldið.

Mig langar ótrúlega að bjóða TAK konur velkomnar á sýninguna mína.

Ágústa

   

Prjónakaffi TAK farið í vor- og sumarfrí

Þriðjudagur, 13. apríl 2010 19:02

Prjónakaffi TAK og vegaHÚSSINS er nú farið í frí.

Ástæðan er margþætt en TAK vill endilega benda á prjóna- hekl og saumakvöld hjá Rauða krossinum á Egilsstöðum, sjá næstu Dagskrá.

Takk allar saman fyrir samverustundirnar í vetur!
Bestu kveðjur frá TAK.

   

Síða 3 af 7

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30