
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Laugardagur, 22. maí 2010 10:58
Á nýliðnum aðalfundi vor Hvatningarverðlaun TAK afhent í fjórða sinn. Þau hlaut að þessu sinni Ágústa Arnardóttir á Djúpavogi, en hún hefur á nokkrum árum komið upp hönnunarstofunni Arfleifð sem framleiðir fatnað og fylgihluti úr íslensku hráefni.
Ágústa hafði með sér nokkur sýnishorn af framleiðslu sinni og fengu fundarkonur tækifæri til að skoða varninginn og er ég illa svikin ef einhverjar gera sér ekki ferð á Djúpavog í sumar til að skoða meira.
Á meðfylgjandi myndum má sjá Ágústu ásamt Auði, fráfarandi formanni og Þórunni, gjaldkera stjórnar.
Laugardagur, 22. maí 2010 10:15
Aðalfundur félagsins var haldinn á Hótel Héraði fimmtudaginn 20. maí. Mæting var sæmileg, en þó hefðum við gjarnan viljað sjá fleiri konur.
Á myndinni er fráfarandi stjórn, en hún hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum á liðnu starfsári, s.s. prjónakaffi í Sláturhúsinu, tveim ráðstefnum um málefni kvenna, kynningarfundum, námskeiðum og fleiru. Einnig var á starfsárinu lögð vinna í að aðstoða konur í öðrum landsfjórðungum að koma í gang tengslanetum af svipuðu tagi og okkar.
Miðvikudagur, 12. maí 2010 14:05
TENGSLANET V – VÖLD TIL KVENNA
SINNASKIPTI, SAMSKIPTI & HUGREKKI
27. – 28. maí á Bifröst
Bandaríski metsölurithöfundurinn Barbara Ehrenreich er aðalfyrirlesari á Tengslaneti V- Völd til kvenna ráðstefnunni sem haldin verður á Bifröst 27. – 28. maí næstkomandi. Ehrenreich þykir einn róttækasti samfélagsgagnrýnandi sem nú er á ritvellinum. Hún er jafnframt dálkahöfundur í New York Times og tíður gestur í spjallþáttum í bandarísku sjónvarpi. Lundúnablaðið Times hefur kallað hana Jonathan Swift samtímans vegna skarprar sýnar hennar á öfgar og óréttlæti. Bók hennar Nickel and Dimed var nýlega valin ein af tíu bestu bókum síðasta áratugar á sviði rannsóknarblaðamennsku af blaðamannstofnun New York háskóla.
Fimmtudagur, 06. maí 2010 21:35
TAK-kona apríl mánaðar 2010
Hvað heitir þú? Alma Jóhanna Árnadóttir.
Hvaðan ertu og hvar býrðu? Hef komið víða við en er Húsvíkingur búsett á Egilsstöðum.
Hvenær ertu fædd? 29. janúar 1969.
Hverjir eru þínir fjölskylduhagir? Gift Eiríki Birni Björgvinssyni starfandi bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði og á með honum þrjá drengi; Hákon Bjarnar 4 mánaða, Birni Eiðar 22 mánaða og Árna Björn 13 ára.
Síða 2 af 7