• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Félagatal hefur verið opnað !

Laugardagur, 16. janúar 2010 12:42

Félagatal TAK hefur nú verið opnað á vefnum.  Eins og sjá má eru aðeins birt nöfn, staðir og símanúmer, en til að fá nánari upplýsingar þarf að skrá sig inn á vefinn.  Eins og sjá má vantar mikið af upplýsingum inn og vil ég því hvetja allar konur til að nota aðganginn sinn, skrá sig inn og skrá sínar upplýsingar. 

Smellið á Innskráning, þar eru leiðbeiningar varðandi innskráningu og týnd lykilorð.  Dugi það ekki er hægt að senda póst á kerfisstjóra hér.

   

Guðrún Margrét Óladóttir

Laugardagur, 16. janúar 2010 11:52

gmoTAK-kona janúar-mánaðar 2010

Hvað heitir þú?     Ég heiti Guðrún Margrét Óladóttir

Hvaðan ertu og hvar býrðu?  Ég er fædd í Reykjavík, bjó í Skíðaskálanum í Hveradölum til  8 ára aldurs, Akranesi til 13 ára aldurs, í Reykjavík til 22 ára aldurs er ég kom til Eskifjarðar á síldarvertíð haustið 1983 og bý þar enn.

Hvenær ertu fædd? Ég er fædd 25. ágúst 1961

Hverjir eru þínir fjölskylduhagir?  Ég er gift manni sem heitir Guðni Kristinsson og á tvö börn.  23. ára stúlku  sem heitir Jóhanna og sem var að gera mig að ömmu þann 4. janúar s.l. og 19 ára strák sem heitir Freyr.

Við hvað starfar þú? Ég starfa sem stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum á Eskifirði.

Lesa nánar: Guðrún Margrét Óladóttir

   

Síða 7 af 7

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30