
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Þriðjudagur, 26. janúar 2010 14:19
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands gengst nú í fjórtánda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni.
Vorið 2010 er áætlað að halda námskeiðið á tveimur stöðum á landinu, þ.e. á Austurlandi og Akureyri. Alls hafa um átta hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.
Þriðjudagur, 26. janúar 2010 14:15
Prjónakaffi TAK í Sláturhúsinu 2. febrúar kl. 20:30-22:00
Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri á Reyðarfirði kemur í heimsókn og sýnir okkur sniðugar lausnir í prjóni s.s. að prjóna 2 ermar í einu og fl.
Mætum með prjónablöðin okkar og sýnum hver annarri.
Allar konur velkomnar.
Miðvikudagur, 20. janúar 2010 15:33
Seyðfirskar TAK-konur bjóða okkur til sín fimmtudaginn 28. janúar kl. 17:30. Hist verður í Skaftfelli og þar skoðuð sýningin Fjallahringurinn. Síðan verður kaffi á Hótel Öldunni, stílisti og Gleymméreisystur hitta okkur þar.
Allar konur velkomnar, hvort sem þær eru í TAK eða ekki.
Skráið þátttöku á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Mánudagur, 18. janúar 2010 17:26
Föstudaginn 15. janúar var stofnfundur tengslanets kvenna á norðausturlandi og fyrir hönd okkar TAK félags mættu Auður Anna, Björk Sigurgeirsdóttir og Jóhanna Guðmundsdóttir á fundinn. Við færðum þeim "Vinahring", fallegan lítinn grip sem er afar líkur lógóinu okkar, unninn úr steinum af Steinasafni Petru. Tæplega 50 konur mættu og vakti það athygli okkar hvað þær komu víða að.
Félagið fékk heitið Urður, tengslanet kvenna á norðausturlandi og formaður þess er Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir á Húsavík.
Aðrar í stjórn eru Svanhildur Kristjánsdóttir, Þingeyjarsveitm Elísa Björk Elmarsdóttir, Húsavíkm Kristjana Erna Helgadóttir, Kópaskeri og Jóna Matthíasdóttir, Húsavík.
Mikill kraftur er hjá þeim Urðar konum og virkilega gaman og hvetjandi fyrir okkur að sækja þær heim. Nú þegar eru komnar spennandi hugmyndir um málþing hér heima. Fljótlega verður opnað svæði fyrir Urði á vefsíðunni www.atthing.is
Síða 6 af 7