• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Merki TAK

Velkomin á T.A.K. vefinn

Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.  Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!

Tengslanetið á Fáskrúðsfirði

Miðvikudagur, 03. mars 2010 10:08

faskÁ baráttudegi kvenna, 8. mars nk.ætla TAK-konur að hittast á Fáskrúðsfirði. Þar munu heimakonur taka á móti hópnum og fara með okkur í skoðunarferð um bæinn sinn.

Skráning á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 899 5715.

Eins og venjulega förum við á okkar eigin bílum en til að spara ferðakostnað og gera ferðina skemmtilegri, reynum við að sameinast í bíla eftir bestu getu.

 

Safnast verður saman á eftirfarandi stöðum:

  • Breiðdalsvík - við Bláfell- Lagt af stað kl. 16:30
  • Egilsstaðir - Landsbankinn - Lagt af stað kl. 17:00
  • Eskifjörður - við Kríuna - Lagt af stað kl. 17:00
  • Norðfjörður - við Olís - Lagt af stað kl. 16:30
  • Reyðarfjörður - við Molann - Lagt af stað kl. 17:30
  • Stöðvarfjörður - við Brekkuna - Lagt af stað kl. 17:30
  • Seyðisfjörður - við Samkaup - Lagt af stað kl. 16:30

Dagskrá

Kl. 18:00 – Berglind og Líneik taka á móti hópnum á bílastæðinu við Franska grafreitinn (utan við bæinn). Skoðunarferð um bæinn m.a. heimsókn í bræðsluna og skólamiðstöðina. (Ágætt að vera í fötum sem þola að fá í sig bræðslulykt, þola þvott).

Kl. 19:45 – Fiskisúpa og brauð á Kaffi Sumarlínu – verð kr. 1100 (Líneik segist geta lofað því að súpan er góð).

   

Sigríður Sigþórsdóttir

Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 14:02

sigga_febTAK-kona febrúar-mánaðar 2010

Hvað heitir þú? Sigríður Sigþórsdóttir

Hvaðan ertu og hvar býrðu?  Fædd á Akureyri en var flutt ung á Vopnafjörð.  Hef verið á Fljótsdalshéraði með nokkrum hléum í næstum 18 ár en bý nú á Egilsstöðum

Hvenær ertu fædd? 30. nóvember 1976

Hverjir eru þínir fjölskylduhagir? Einstæð móðir með eitt barn 

Við hvað starfar þú? Starfa við löggæslu í umdæmi Sýslumannsins á Seyðisfirði, með starfsstöð á Egilsstöðum.

Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór? Nei ekki alveg, ætlaði mér ekki að verða lögreglumaður þannig að enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér.

Lesa nánar: Sigríður Sigþórsdóttir

   

Lífsvefurinn

Þriðjudagur, 09. febrúar 2010 13:42

Lífsvefurinn – sjálfsstyrkingarnám fyrir konur.

lifsvefurLífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi.  Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur. 

 

 

 

 

 

 

Lesa nánar: Lífsvefurinn

   

Seyðisfjörður 28. janúar

Miðvikudagur, 27. janúar 2010 18:22

Fimmtudaginn 28. janúar ætla Seyðfirskar konur að taka á móti okkur í Skaftfelli kl. 17:30

Farið verður á einkabílum og við reynum að sameinast í bíla á flestum stöðum ef áhugi er:


Egilsstaðir - Landsbankinn
Reyðarfjörður - við Molann
Fáskrúðsfjörður - við Café Sumarlínu
Seyðisfjörður - við Samkaup
Norðfjörður - við Olís

 

   

Síða 5 af 7

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30