
Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru samtök kvenna á Austurlandi. Hlutverk þess er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti T.A.K. er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Skráið ykkur í T.A.K og takið þátt í skemmtilegum félagsskap ! Allar konur velkomnar!
Fimmtudagur, 01. apríl 2010 01:30
Stjórn TAK óskar öllum TAK konum gleðilegra páska!
Miðvikudagur, 24. mars 2010 13:56
Alþjóðlega vídeó- og tilraunakvikmyndahátíðin 700IS Hreindýraland var sett í fimmta sinn um nýliðna helgi í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. 700IS er fyrsta listverkefnið á Austurlandi til að fá Evrópustyrk í hópi með 3 öðrum sambærilegum hátíðum og er það gríðarlega mikilvægt skref fyrir hátíðir og viðburði á Austurlandi. Hátíðina skóp Kristín Scheving listamaður ásamt Karen Erlu Erlingsdóttur frístunda- og menningarfulltrúa Fljótsdalshéraðs, Kristín er framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Aðstoðarframkvæmdastjóri er Íris Lind Sævarsdóttir og meðstjórnendur eru Ólöf Björk Bragadóttir og Þórunn Hjartardóttir. Þetta er gífurlega öflugur hópur kvenna og eru þær búnar að galdra fram stórkostlegt hlaðborð fyrir augu og eyru í Sláturhúsinu á Egilsstöðum með aðstoð margra góðra aðila. Eru konur hvattar til að kíkja á sýninguna og skella sér svo á lokahóf hátíðarinnar á Eiðum nk. laugard. kl. 19:00. Þar munu m.a. Karna Sigurðardóttir listamaður úr Fellum verða með gjörninga og fl. óvenjulegt og spennandi.
Þriðjudagur, 16. mars 2010 12:43

Prjónakaffið fellur niður í kvöld 16. mars !
Hittumst næst 30. mars 2010 !
Þriðjudagur, 09. mars 2010 09:45
Mánud. 8. mars stormuðu TAK konur á Fáskrúðsfjörð á stefnumót við Fáskrúðsfjarðarkonur.
Líneik Anna Sævarsdóttir og Berglind Agnarsdóttir tóku á móti vöskum hópi 15 kvenna við grafreit franskra sjómanna rétt utan við kaupstaðinn Búðir. Þaðan var farið í Loðnuvinnsluna LVF og fengu konur frábæra innsýn í þetta tæknivædda fyrirtæki. Starfsmenn þar tóku einstaklega vel á móti þessum óvæntu gestum.
Að þessu loknu var staldrað við hjá ráðhúsi bæjarins, þar fengu konur kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu á gömlu húsum bæjarins og mögulegum flutningi gamla franska spítalans frá Hafnarnesi handan fjarðar inn í kjarna bæjarins..
Frá ráðhúsinu var svo farið í skólamiðstöðina á Fáskrúðsfirði sem er stórglæsileg bygging og voru konur sérstaklega hrifnar af samlegðaráhrifum þess að hafa leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og bókasafn bæjarins allt á einum stað. Trés magnifique! Berglind Agnarsdóttir sýndi konum þessa glæsilegu byggingu og endaði heimsóknin þar á gullpúðum og sögustund í söguhorni Berglindar í innsta kjarna leikskólans Kærabæjar. Var það mjög huggulegt, trés charmant.
Ferðinni lauk svo í yndislegri fiskisúpu og nýbökuðu brauði á Café Sumarlínu.TAK þakkar Fáskrúðsfjarðarkonum innilega fyrir höfðinglegar móttökur.
Síða 4 af 7